Jólakötturinn

Ég elska þetta lag og hræðist það pínu líka:(Þetta er horror kvikindi og Björk fer best með þetta lag að mínu mati.Hér er textinn og hann er sá besti sem ég hef heyrt,alveg snilldarlega vel gerður og vá,ég eiginlega trúi smá á jólaköttinn....vona að ég fari ekki í ginið á honum!

Þið kannist við jólaköttinn
- sá köttur var griðarstór
Fólk vissi'ekki hvaðan hann kom
eða hvert hann fór

Hann glennti upp glyrnurnar sinar
glóandi báðar tvær
Það var ekki heiglum hent
að horfa í þær

Kamparnir beittir sem broddar
upp úr bakinu kryppna há
og klærnar à loðinni löpp
var ljótt að sjá

Því var það, að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítin sokk

Þvi kötturinn mátti' ekki koma
og krækja í börnin smá
Þau urðu að fásína flík
þeim fullorðnu hjá

Og er kveikt var á jólakvöldið
og kötturin gægðist inn
stóðu börnin bísperrt og rjóð
með böggulinn sinn

Hann veifaði stélinu sterka
hann stökk og hann klóraði' og blés
og var ýmist uppi í dal
eða úti' um nes

Hann sveimaði, soltinn og grimmur
í sárköldum jólasnæ
og vakti í hjörtunum hroll
á hverjum bæ

Ef mjálmað var aumlega úti
var ólukkan samstundis vís
Allir vissu' að hann veiddi menn
en vildi ekki mýs

Hann lagðist á fátæka fólkið
sem fékk enga nýja spjör
fyrir jólin - og baslaði og bjó
við bágust kjör

Frá því tók hann ætið í einu
allan þess jólamat
og át það svo oftast nær sjálft
ef hann gat

Því var það, að konurnar kepptust
við kamba og vefstól og rokk
og prjónuðu litfagran lepp
eða lítin sokk

Sum höfðe fengið svuntu
og sum höfðu fengið skó
eða eitthvað, sem þótti þarft
en þad var nóg

Þvi kisa máti' engan eta
sem einhverja flíkina hlaut
Hún hvæsti þá heldur ljót
og hljóp á braut

Hvort enn er hún til, veit ég ekki
en aum yrði hennar för
ef allir eignuðust næst
einhverja spjör

Þið hafið nú kannske í huga
að hjálpa, ef þörf verður á
máske enn finnist einhver börn
sem ekkert fá

Máske, að leitin að þeim sem líða
af ljósskorti heims um ból
gefi ykkur góðan dag
og gleðileg jól


Flær eru ógeð og koma markaði ekkert við!

Það kom dreifibréf inn um munninn á hurðinni í dag og það var um flóamarkað á Dalvík 4. og 5.des.Þetta er einmitt það sem við Nonni vorum að tala um fyrir ekki svo löngu.Nútímafólk flest á svo mikið af dóti og fötum sem það notar ekkert og gæti komið sér vel fyrir marga.Ef þetta er ekki sniðugt þá veit ég ekki hvað og mér finnst svona eiga líka fullkomlega rétt á sér þó að ekki fyrirfinnist kreppuógeð.Einu sinni,tvisvar á ári takk fyrir,forever!

Dalvík....

...er að komast í jólabúninginn og mig grunar að jólaljósunum eigi eftir að fjölga ansi mikið um helgina:)Hvað haldið þið?

Jólablogg

Uppáhalds tíminn minn er núna!Ég elska þetta myrkur og ég elska að kveikja á kertum og seríum og hafa það notó.Það eru 34 dagar til jóla og sumir eru byrjaðir að skreyta og undirbúa sig á einn eða annan hátt fyrir hátíðina.

Ég vona að þið verðið dugleg að kíkja á þessa síðu því ég ætla að vera mjög dugleg að blogga um jólin og allt sem tengist þeim og það er svo gaman að fá komment.

Munið bara að jólin snúast ekki um að eyða mánaðarlaunum á einu bretti í eitthvað drasl sem skiptir engu máli og ekki nota kreditkortið!!!Það er alveg bannað!!!!Ekki vera að spá í að gefa fullorðnu fólki dýrar gjafir,nútímafólk á allt sem það þarf og þarf ekki:)Jólakort er nóg,koss á kinn,faðmlag eða nokkrar heimabakaðar smákökur í poka.Það er hugurinn sem gildir og við vitum það öll en við missum okkur samt alltof oft,það er bara staðreynd.Börnin eru númer eitt tvö og þrjú.

En vá ég er í svaka jólaskapi og heimilið mitt angar af jólalykt og hér er ''uppskriftin'' sem er frá samstarfskonu minni,jólabarninu Ragnheiði Rut.

Mandarína
Negulnaglar
Kanilstangir

Stingið negulnöglum í mandarínuna,ekkert að spara þá neitt og setjið stöffið í lítinn pott.Vatn upp að hálfri mandarínu,kanilstangir út í og látið malla við vægan hita í óákveðinn tíma:)Munið að bæta vatni í annaðslagið:)
Ég á rafmagnshellu sem er fyrir fondue pott og ég nota það,mjög sneddí:)Ódýrt og gott!


Æ ég er að bulla

Lífið er ekki bara túnfiskur......eða hvað??Við fáum að borða í vinnunni,voða fínn matur þar og ekkert til sparað.Það er morgunkorn,brauð bakað á staðnum,salatbar,allskonar álegg,kæfur,sultur,mjólkurkælar með ný og léttmjólk,súpa í hádeginu,ég get talið upp miklu miklu meira en nenni ekki:)Allavega þá var túnfiskur í salatbarnum í dag og það voru bara jólin hjá mér:)Meira að segja túnfiskur í olíu,sveittur og fitandi jömmó!Ég er búin að garfa í mig slatta af þessari munaðarvöru og skammast mín ekki neitt!!!!Ég máetta!!!!

Það er þó allavega gott þegar fyrirtæki bjóða upp á mat,yfirhöfuð og sérstaklega núna á erfiðum tímum.Ég veit alveg að það kemur að því að fólk á ekki til hnífs og skeiðar og þá er gott að hafa þennan möguleika.Ég gæti lifað í tvo mánuði á forðanum sem ég hef on mæ bodddei hehehe og svo annað eins á helvítis sviðakjömmunum sem eru í kistunni,jakk!!!En í neyð....í neyð krakkar mínir:)

Verður maður ekki að leyfa sér að grínast og hafa gaman þrátt fyrir allt?Ég held það....annars verðum við bara að gefast upp og það gerir ekki sterkasta og duglegasta þjóð í heimi!!Þjóðremba já....ÉG MÁETTA!!!!


Túnfisksframhaldssagan

Já sæll,núna er dósin alræmda komin í 261 krónu takk fyrir það!

El bloggos já....

Það sem er að gerast í okkar fallega og góða landi er svo innilega sorglegt að ég á ekki orð yfir það.Ég reyni að horfa á björtu hliðarnar er stundum þá bara sé ég þær ekki,en hvað getur maður svosem gert?Jú við verðum að standa saman og muna þau orð sem ég hef svo oft sagt ''það er alltaf bjart framundan þó að maður sjái það ekki í augnablikinu''

En það er alveg ljóst að ég og landar mínir hafa yfirleitt tekið það í ósmurt taðgatið,verðlagið hér hefur alltaf verið alltof hátt.En við létum okkur hafa það en núna.....maður minn!!!Smá dæmi hérna....ég hef stundum gefið kisa litla túnfisk,keypt eina og eina dós á hundrað kjellinn,finnst það nú ekki mikið.En ég fékk alveg sáran sting í r....gatið í gær þegar ég ákvað að grípa eina dós með mér og sá að verðið hafði hækkað upp í 249 krónur!Já fínt já sæll,ég tími ekki að kaupa túnfiskdós handa mér,hvað þá kisu sem á nú samt allt gott skilið en vá,hún er ekki konungborin og ekki Brynja Svanhvít heldur!!!!

Ég tek með mér vaselínið í búðina framvegis,verst ef það klárast þá hef ég ábyggilega ekki efni á að kaupa nýtt!!!!

En elskurnar mínar,við verðum að standa saman og vera góð við hvert annað.


Ég mótmæli!!!

Nú hættum við að kaupa Breskar vörur.Eruð þið með???Það er voðalega fallega gert af stórveldi að ráðast á litla þjóð út í ballarhafi og þetta er ekki í fyrsta skipti.En Íslendingar eru harðasta fólk í heimi og við látum ekki vaða yfir okkur svo auðveldlega.Íslenskt já takk,Breskt nei takk.

Ríðum ríðum ríðum

Þetta er besti titill sem ég hef sett á bloggfærslu hehehe.Eigum við að ræða rugl-diskinn hans Helga Björns???Þetta finnst mér vera alveg ofboðslega leiðinleg tónlist og þetta er allt eitthvað ''ríðum'' já og ''ríðum meira'' og ''ríðum og ríðum og rekum yfir sandinn''Kannski virkar þetta fyrir suma.....en þetta er ekki minn tebolli.

Eníhjú þá langar mig að bæta mig í blogginu og ég ætla að vera dugleg.....eða duglegri.Svo er ég að prófa Facebook núna og skil ekki baun en þetta er samt pínu spennó!Ætla að reyna að læra á þetta....Nonni er minn lærifaðir í þessu og ég stóla á hans visku:)

Annars er allt gott að frétta,allt gengur sinn vanagang og ég verð nú að segja ykkur smá af kisulingnum okkar,henni Dorrit.Hún er mjög athyglisverð svo ekki sé meira sagt!Hún gerir allt þveröfugt við það sem kettir eiga að gera.Hún til dæmis ELSKAR RYKSUGUNA!!!!Ekkert hrædd við hávaðann og fílar í botn þegar hún fær ''mjóa stútinn''á fullum krafti á bakið hehehe,voða gaman.Hún er EKKI vatnshrædd,já sæll,eigum við að ræða það???Búin að detta í baðið nokkrum sinnum og er eiginlega bara frekar hissa,''hey hvað er þetta?Ok ég er pínu blaut en það er bara stuð''Hún er eins og köttur Bakkabræðra,étur ALLT!!!Geðveikt spennó að smakka flatbrauð með hangikjöti....eða nei ekki hangikjöti því sumir slöfruðu það í sig(hvar eru jólin?)Smá hangi-græðgi,og þessir ''sumir'' eru moi:)Eníhjú,þá var afgangur af flatbrauðinu og kisi fékk að smakka.Það féll í kramið og hún malaði af ánægju og varð aðeins of gráðug,steig á sneiðina og trítlaði svo í sófanum með smjör á loppunum.Hmm alveg vinsælt:)Guði sé lof fyrir IKEA og þeirra brellur.Auðvitað er hægt að þvo áklæðið í venjulegri þvottavél.


Handbolti,hvað annað??

Ég er að springa úr stolti!Strákarnir okkar eru alveg hreint magnaðir!!!Við byrjuðum að vinna í dag og verið að prufukeyra nýja frystó og allt gekk voða hægt og svona,ekki eins og við höfum unnið mikið.Engin pressa í gangi og þess vegna var allt liðið sent heim til að horfa á leikinn.Þetta er í fyrsta sinn (og líklega síðasta) sem ég hef fengið frí til að fara heim og horfa á sjónvarpið.Karen og Hrefna horfðu á með okkur og það var ekki laust við smá trylling hér í húsi hehe.Svo er bara að taka sniglaæturnar í skraufþurrt taðgatið á sunnudaginn,jibbíkóla!!!Mér er alveg sama hversu þeir eru góðir,við eigum alveg sjens.Þetta fer í sögubækurnar gott fólk,gerið ykkur grein fyrir því.Gaman að upplifa þetta.

En já,vinnan.....húsið lítur alveg eins að utan en þegar inn er komið þá er breytingin þvílík að maður þarf að spá í,bíddu er ekki örugglega árið 2008?Er ég komin 100 ár fram í tímann?Fullkomnasta frystihús í heimi,allt svaka flott og öll vinnuaðstaða betri.Fiskvinna er erfið en jeminn,eftir að ég byrjaði í frystó fyrir 8 árum þá hefur líkaminn fengið að kenna á því,rosalega erfið vinna líkamlega.Eins og ég sagði þá er vinnuaðstaðan miklu betri og það er mjög gott.Ég vil alveg taka á'ðí í vinnunni en satt að segja þá stundum var þetta of mikið.En ég elska vinnuna mína og ég segi frá því með stolti,''ég vinn í fullkomnasta frystihúsi í heimi og við framleiðum fyrsta flokks vöru''Ótrúlegur metnaður í gangi og mórallinn er mjög góður.

Ta ta!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband